Græna lónið með meiri lækningamátt en það bláa?
Gænu þörungarnarnir sem valda litnum sem nú er á Bláa lóninu (eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í kvöld) er ekki hættulegur, að sögn sérfræðiðngs sem Eyjan ræddi við í kvöld. Sumir þörungar geta verið hættulegir en þessir séu þvert á móti heilsusamlegir.
Upplýst var í fréttinni að það væri hátt hitastig vatnsins og mikið sólskin sem hefði fengið grænþörunga í vatninu til að blómstra með þessum afleiðingum. Rætt var við rútubílstjóra sem rak í rogastans við að sjá að Bláa lónið sem farþegar hans hugðust heimsækja var ekki lengur blátt, heldur grænt.
Heimildarmaður Eyjunnar á Reykjanesskaga segir að þörungarnir auki að öllum líkindum lækningamátt lónsins og byrjað hafi verið að blanda þeim í húðvörur frá Bláa lóninu eftir að rannsóknir sýndu að þeir hefðu styrkjandi áhrif á húð.
Hins vegar skjóti það auðvitað skökku við að blátt sé grænt.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
