Sunnudagur 24.06.2007 - 20:05 - Ummæli ()

Ljósvakarúntur 24.júní

ras 1
Fréttatími Stöðvar 2 var stútfullur af skemmtilegum “mannlegum” fréttum þetta sunnudagskvöld og fréttastofa RÚV átti fína spretti en stærsta frétt dagsins á báðum stöðvum var af tveimur alvarlegum líkamsárásum. Í fréttum útvarpsins var í kvöld sagt frá fjöldaárás sem átti sér stað í íbúð í Breiðholti í nótt. Sex litháar eru í yfirheyrslum vegna málsins en einn landi þeirra liggur stórslasaður á gjörgæslu. Einnig liggur 18 ára piltur alvarlega slasaður eftir ráðist var á hann úti á götu í Reykjanesbæ í nótt.

sjónvarpiðMannlegu fréttirnar bar hæst hjá Stöð 2. Fyrst ber að nefna skondna frétt um að Bláa lónið væri orðið grænt – en ástæðan mun vera mikið sólskin sem hitar lónið upp og gerir það að gróðarstíu fyrir grænanþörunga. Þetta væri tilvalin frétt fyrir íslenska AP-umboðsmanninn að senda til erlendra fjölmiðla.

Síðan var hjartnæm frétt um heiðna konu og kristinn mann sem gengu í hjónaband í fjörunni hjá sér í Arnardal og sameinuðust Þórsnesgoði og presturinn á staðnum um að gefa þau saman. Skælbrosandi brúðhjónin töldu að Guð og góðir vættir hefðu sameinast í að koma með sólina í brúðkaupið.

Þriðja mannlega fréttin í þessari bunu hjá fréttastofunni var um afskipti lögreglunnar af gæs sem svamlaði um í Tjörninni í Reykjavík – þetta var reyndar ekki venjuleg gæs heldur væntanleg brúður sem verið var að “gæsa”.

RUV TVÍ fréttum Ríkissjónvarpsins mátti svo í kvöld sjá flotta sjónvarpsgrafík í frétt um 9.hæða hús sem reisa á við Álagranda í Vesturbænum. Fyrirhuguð blokkarþyrping reis bókstaflega og hneig bakvið Svavar Halldórsson fréttamann (sem hefur verið nokkuð sprækur frá því að hann kom aftur “heim” í Efstaleitið).

Einnig var sniðugt hjá þeim að vera með beina útsendingu frá Þingvallaafleggjaranum í fréttatímanum þar sem sýnd var bílaröðin sem nú mjakast inn í höfuðborgina. Þaðan var klippt í tvær fréttir sem snerta margt fólk. Annars vegar um mikla fjölgun hjólhýsa og fellihýsa og hins vegar um fyrirhugaðar breytingar númerakerfinu á bílnúmerum landsmanna. Bókstafirnir verða í framtíðinni þrír en ekki tveir og tölurnar verða tvær.

Báðar stöðvar voru með skemmtilegar mannlegar fréttir utan úr heimi en það gerði gæfumuninn að þeir voru með íslenska fréttaritara á staðnum sem tóku viðtölin.Héðinn Halldórsson var með frétt og viðtal hjá RÚV við pulsusala í Kaupmannahöfn sem talaði um að pulsusalarnir væru deyjandi stétt vegna vaxandi samkeppni frá Kebab-búllum og 7-11 klukkubúðum. Það hafa margir Íslendingar snætt pylsur á götum Kaupmannahafnar í gegnum árin og það væri leiðinlegt ef pulsuvagnarnir hverfa alveg.

Eva Bergþóra var með innslag frá Kaliforníu á Stöð 2 (skemmtileg nýbreytni að vera með virkan fréttaritara á þessu svæði) og tók viðtal við 63 ára gamla konu sem komst á fyrirsætusamning hjá Ford skrifstofunni á gamals aldri – hress kona og bráðmyndarleg alveg…

Að lokum má benda á frétt Þóru Arnórsdóttur þar sem sýnt var brot úr fréttatíma frá því í árdaga Ríkissjónvarpsins og í ljós kom að tímarnir hafa ekki mikið breyst, en fréttin gamla fjallaði minnkandi aðsókn að strætisvögnum Reykjavíkur. Ósagða frétt kvöldsins er síðan hvernig fyrrnefndri Þóru og Svavari gengur að vinna á sömu fréttavöktum á RÚV – en þau eru hjón. :)

AJ


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is