Mánudagur 25.06.2007 - 09:00 - Ummæli ()

Blöðin: Slasaður án hjálpar – leiðrétting dagsins – útgerð og hafrannsóknir

a2007-06-25_wide.gif

Frétttablaðið heldur áfram að tala um hafrannsóknir á forsíðufrétt en Moggin er aðallega í því að sópa upp fréttum helgarinnar um líkamsárásir og umferðarþunga. Leiðarar Moggans báðir eru svo um erlend málefni þannig að það er gúrkulegt yfir blaðið að líta, – og raunar á það við um þau bæði.

- 3ja-dálka frétt á forsíðu Moggans segir frá því að rúmlega tvítugur Pólverji brenndist illa í gær þegar sjóðandi vatn úr goshvernum Strokki skvettist yfir fætur hans, misreiknaði hæð gosstróksins og fékk vatn yfir sig. Félögum mannsins gekk illa að finna hjálp á staðnum en náðu að að stöðva bíl og fá hjálp þegar þeir voru komnir 16 kílómetra frá Geysissvæðinu.

-Staksteinar taka að sér hlutverk leiðréttingardálks í dag. Mogginn hafði í fyrradag ranglega eftir Einari Oddi Kristjánssyni að almenn samstaða væri um endurskoðun kvótakerfisins. Sló því upp sem von var, en faldi leiðréttingu Einars Odd á bls. 37 þegar hann vildi benda á að hann hefði sagt að EKKI væri almenn samstaða um endurskoðun kvótakerfisins. Eftir Staksteinadálkinn ætti þetta að vera komið til skila og er upphaflega fréttin nú mun verri en áður.

- Í forsíðufréttaskýringu er farið yfir hið flókna eftirlits- og refsivörslukerfi efnahagsbrota og þær umræður sem verið hafa um úrbætur á því undanfarið. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra útilokar í blaðinu að breyta því fyrirkomulagi að ríkissaksóknari sé handhafi ákæruvalds en telur koma til greina að sérstökum saksóknara verði falið að starfa með skattrannsóknarstjóra.

urlget1.gif- Aðalfréttin á forsíðu Fréttablaðsins er sú að útgerðir vilji koma meira að hafrannsóknum og er það haft eftir Friðrik J. Arngrímssyni, framkvæmdastjóra LÍÚ, og Guðmundi Kristánssyni, forstjóra Brims, sem segir að útgerðini eigi þó ekki bara að borg, hún verði líka að hafa áhrif. Eggert Guðmundsson, forstjóri Granda tala hins vegar hreint út og spyr hverjir muni njóta aukinnar þekkingar? „Sumir hafa talað um að þegar þorskstofninn fer að hjarna við aftur þá fari sú aukning til einhverra annarra en þeirra sem eru með kvótaheimildirnar núna,“ segir hann..


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is