Fimmtudagur 28.06.2007 - 07:04 - Ummæli ()

Baugsdómur í dag

Dómur í Baugsmálinu verður kveðinn upp kl. 15 í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur, að því er fram kemur í Fréttablaðinu.

Um er að ræða ákæruliði þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs er sakaður um að hafa látið veita ólögmæt lán. Tryggi Jónsson er sakaður um fjárdrátt og Jón Gerald Sllenberger fyrir að útbúa tilhæfulausan kreditreikning. Héraðsdómur hefur áður vísað þessum ákæruliðum frá en Hæstiréttur sendi þá aftur í hérað til efnismeðferðar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is