Fimmtudagur 28.06.2007 - 11:45 - Ummæli ()

Bloggrúntur 28.06: Óhæfur aðstoðarmaður? – þjóðnýting fiskveiða

Það eru engar heitar deilur geysandi í bloggheimum í dag, að séð verði. Svo virðist sem hinar heitu umræður sem verið hafa undanfarna daga um bloggarann Emil séu að sjatna, eða lesendur bloggsíðna amk hættir að nenna að fylgjast með. Eins og oft eru þó heitar umræður í athugasemdadálkum Sóleyjar Tómasdóttur, ritara VG, sem lýsti því yfir að hún hefði þá skoðun að Hrannar B. Arnarsson væri ekki hæfasti aðstoðarmaðurinn fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra. Fjölmargir taka upp þykkjuna fyrir Hrannar í athugasemdum, til að andmæla Sóleyju og minna á að í félagsmálaráðuneytinu sé sýslað með fjölmarga aðra málaflokka en jafnréttismálin.

—-

Pétur Tyrfingsson, Eyjubloggari, fjallar um sjávarútvegsmálin og ræður þau á svipuðum nótum og Björn Ingi Hrafnsson gerði í ræðu á sjómannadag þegar hann sagði að grunnmarkmið fiskveiðistjórnunarinnar ætti að miðast við að auðlindin yrði undirstaða nýrrar byggðarstefnu. Pétur orðar líka hugsun með öðrum hætti og tekur svo á málinu sósíalískan snúning:

Á Íslandi eru fiskveiðar stóriðja. Við þurfum að taka ákvörðun um að við ætlum að afnema þessa stóriðju og fá fiskveiðum það hlutverk að vera einfaldlega partur af þjóðlífinu og undirstaða einstakra byggða og sveita en ekki allrar þjóðarinnar. Við getum byrjað á því að taka aftur til okkar allan þorskkvóta. Svo setjum við þá reglu að enginn fái úthlutaðan kvóta nema bæjarútgerðir. [...] Hvað segja menn um þessa tilraun? Er hún eitthvað vitlausari en sú hringavitleysa og rugl sem ríkt hefur í sjávarútvegsmálum þjóðarinnar síðastliðin þrjátíu ár?

—-

Undanfarna daga hafa fjölmargir bloggarar gert að umtalsefni minningargreinina sem Einar S. Hálfdánarson birti um Susie dóttur sína á miðopnu morgunblaðsins á þriðjudag en hún lést af neyslu morfínefna sem talið er að fíkill sem lá með henni á sjúkrahúsi hafi gefið henni. Susie hafði á verið morfínfíkill en laus undan neyslu í um fjögur ár. Friðjón, Stefán Friðrik, Tómas, Dögg Pálsdóttir og Davíð Logi eru meðal þeirra sem rætt hafa málið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is