Danmörk: Giskað á nafn nýju prinsessunar
Veðbankinn Ladbrokes opnaði í gær fyrir veðmál um nafn nýjustu prinsessunar í konungsfjölskyldu Danmerkur. Prinsessan verður skírð á sunnudaginn kemur og vinsælustu nöfnin hjá veðbönkum eru Lotta og Nanna. Sá sem giskar á nafnið Alxendra og hefur rétt fyrir sér gæti hins vegar átt von á hundraðfalda upphæðina sem hann lagði undir.
Jóakim Friðrik prins og Mary Donaldsson eiginkona hans geisla af hamingju en dóttirinn þykir lifandi eftirmynd móður sinnar.
Meðal skírnargjafa sem prinessunni hafa borist er armband frá eyjunni Tasmaníu í Ástralíu, heimalandi móður hennar. Armbandið er rautt og hvítt með eplafræjum úr hvítagulli sem eiga að tákna Tasmaníu og níu rauðum hjörtum sem eiga að tákna skjaldamerki Danmerkur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is