Fimmtudagur 28.06.2007 - 15:05 - Ummæli ()

Jón Ásgeir sýknaður – Jón Gerald hlaut 3ja mánaða skilorðsdóm

jajHéraðsdómur Reykjavíkur dæmdi nú klukkan 15 Tryggva Jónsson, fyrrverandi forstjóra Baugs, í 12 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til 2ja ára og Jón Gerald Sullenberger, fyrrum viðskiptafélaga Baugs sem var dæmdur í 3 mánaðar skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Jón Ásgeir Jóhannesson sýknaður af öllum ákærum, þar á meðal þeim sem héraðsdómur hafði áður vísað frá vegna óskýrleika refsiheimilda en Hæstiréttur hafði vísað í hérað á ný og lagt fyrir dóminn að taka til efnismeðferðar.

Tryggvi Jónsson var dæmdur fyrir um hluta af þeim fjárdráttarbrotum sem honum voru gefin að sök en Jón Gerald Sullenberger var dæmdur fyrir að hafa útbúið falsaðan reikning.

—-

Lesa má dóm Héraðsdóms í heild á vef Héraðsdóms Reykjavíkur með því að smella hér.

Slóðir á aðrar fréttir Eyjunnar um Baugsdóminn í dag fara hér á eftir:

Tryggvi sakfelldur fyrir 547.000 kr. fjárdrátt…

Sýkna Jóns Ásgeirs: Fjórum verknuðum rétt lýst…

Saksóknari áfrýjar – einnig verjandur Jóns Geralds…

Missa rétt til stjórnarsetu staðfesti Hæstiréttur dóma

Jón Gerald greiði málsvarnarlaun að fullu – ríkið greiðir fyrir allan kostnað…

———-


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is