Mánudagur 02.07.2007 - 07:28 - Ummæli ()

Blaðarúntur 020707: 1.800 útlendingar týndir á Íslandi? – stöngin út

frettabladid_forsida1.gif1800 manns frá átta löndum Austur-Evrópu hafa fengið kennitölur á Íslandi en hafa ekki skilað sér inn í kerfið hjá Vinnumálastofnun. Þetta kemur fram í lokagrein Fréttablaðsins um skipulagða glæpastarfsemi, sem birt er í dag. Þar af eru um 1.300 Pólverjar og 250 frá Litháen. Ástæður fyrir þessu geta verið ýmsar, segir í greininni, t.d. þær að viðkomandi hafi aldrei skilað sér til landsins, unnið hér í skamman tíma eða þá að vinnuveitendur fólksins hafi ekki sinnt því að skrá það.

Þetta rifjar upp hvassa gagnrýni sem Hildur Dungal, forstjóri Útlendingastofnunar, setti nýlega fram á stjórnsýslu útlendingamála. Málefnum útlendinga er skipt niður á tvær stofnanir, Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun, auk þess sem þriðja stofnunin, Hagstofa Íslands, gefur út kennitölur. Fjöldi týndra getur til kynna að hér megi bæta vinnubrögð.

Í hinni ágætu grein Fréttablaðsins er sjónum einkum beint að ferðaskrifstofunni Jetis sem starfar fyrir opnum tjöldum í borginni Kaunas í Litháen. Hún fæst víst einkum við að bóka ferðir burðardýra fíkniefna milli landa. Greinaflokki Fréttablaðsins er nú lokið og hefur hann greinilega verið lengi í smíðum og byggir á samtölum við tugi heimildarmanna. Höfundar greinaflokksins er ekki getið í blaðinu.

—-

mbl_forsida.gifMorgunblaðið skrifar leiðara um tilræðin á Bretlandi og að vígstöðvar í stríðinu gegn hryðjuverkum séu hvorki í Írak né Afganistan heldur í fátækrahverfum evrópskra stórborga. Áreiðanlega er það rétt, en eins og Eyjan segir frá hér segir breska lögreglan nú að tilræðin um helgina hafi ekki verið skipulögð af ungum breskum múslimum heldur mönnum sem eru nýlega fluttir til landsins.

Morgunblaðið fjallaði í gær um sjávarútveg á Vestfjörðum en í dag er fjallað um sjávarútveg á Austurlandi í viðtölum við ellefu manns í fjórðungnum og er sjónum einkum beint að fjörðunum í jarðri þess atvinnusvæðis sem nú er að myndast frá Héraði niður á Reyðarfjörð. Fyrirsögnin er: Firðirnir fjærst Fjarðarbyggð í kröggum. Aðalmyndin með greininni er af álverinu í Reyðarfirði og í myndatexta segir að tilkoma Fjarðráls hafi haft og muni hafa ótrúlega jákvæð áhrif á atvinnulíf og mannlíf á Austurlandi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is