Kynþokkafyllstu grænmetisæturnar: Carrie Underwood og Ruben Studdard
American Idol stjarnan Carrie Underwood var valin kynþokkafyllsta fræga grænmetisætan hjá PETA (People for the Ethical Treatment of Animals). Hún hefur ekki borðað kjöt síðan hún var 13 ára, eða í rúm 11 ár.
Einnig var hún heiðruð fyrir störf sín þar sem hún vinnur að því að bjarga heimilislausum hvolpum og kettlingum. Sjálf sagði hún í viðtali að hún nyti starfsins að hjálpa dýrunum en ill meðferð á dýrum gerði hana sorgmædda.
Það gerir fréttina þó öllu áhugaverðari (eða ólíklegri) að önnur American Idol-stjarna, Ruben Studdard var einn af þeim sem “kepptu” um kynþokkafyllsta karlkyns stjarna sem er grænmetisæta. Það er frekar ótrúlegt, þegar maður sér Ruben, að hann borði bara grænmeti….. Það var Kevin Eubanks, úr The Tonight Show (með Jay Leno) sem fékk þau verðlaun.
Það úir allt og grúir af grænmetisætum í Hollywood svo við skulum nefna nokkur nöfn sem Íslendingar þekkja – sem áttu möguleika á sigri í keppninni: Milo Ventimiglia (Peter Petrelli úr Heroes), Jennie Garth (Kelly í Beverly Hills 90210), Joaquin Phoenix, Alicia Silverstone, Forest Whitaker, Prince og Prodigy. Þið getið séð allan listann hér.
—-
Fleiri fréttir af fólki hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is