Kristinn H.: Veruleg fólksfækkun – aukin samþjöppun í sjávarútvegi
„Þetta er alveg ferlegt og mun fara illa með mörg sjávarplássin – það verður gríðarlega samþjöppun aflaheimilda,“ sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins þegar Eyjan leitaði viðbragða hans við ákvörðun sjávarútvegsráðherra um 130.000 tonna hámarksafla í þorski.
„Það munu margir smærri útgerðarmenn selja sinn kvóta og ég óttast að þetta verði meira áfall fyrir landsbyggðina en menn gera sér grein fyrir í upphafi,“ sagði Kristinn.
„Ég held að þetta veiki trú fólks á framtíðina í sjávarplássunum því að ráðherrann tilkynnir í raun um niðurskurð til 3ja ára og mér líst mjög illa og er mjög ósammála því að ráðherrann fari að tillögum Hafró. Það kemur á óvart að hann geri það, því ég veit ekki um neinn sem var sammála þeim.“
„Ég heyri það á fólki fyrir vesetan að fólk er að hugsa alvarlega um að hætta að treysta á framtíðina í sjávarplássunum og er að hugsa alvarlega um að koma sér suður og ég er mjög smeykur um að framundan sé veruleg fólksfækkun,“ sagði Kristinn.
Kristinn kvaðst spá því að næsta skref stjórnvalda yrði að afnema eða hækka verulega svokallað kvótaþak með lögum en samkvæmt því má enginn einn aðili eiga meira en 12% aflaheimilda í hverri tegund. Þannig muni þessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar eingöngu koma stærri útgerðum til góða.
Um mótvægisaðgerðir stjórnvalda sagði Kristinn að ágætt væri að flýta vegagerð og uppbyggingu háhraðatenginga en það væru aðgerðir í atvinnumálum sem skiptu sköpum og miðað við það sem fram er komið um að mótvægisaðgerðir felist eingönug í því að flýta framkvæmdum verði slíkar aðgerðir ekki stórvægilegar og engan veginn nægar til að vega á móti samdrætti. Það stuði ennfrekar að því að fólk flytji á brott.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is