Föstudagur 06.07.2007 - 21:14 - Ummæli ()

Umhverfisvænn forsetabíll kostar 11,7 milljónir

tmc_08lexusls600hl.jpgForseti Toyota í Evrópu afhenti forseta Íslands í dag nýjan bíl af gerðinni Lexus LS 600h með hybrid-kerfi sem samanstendur af rafmótor og bensínvél. Bíllinn kostar 11,7 milljónir króna.

Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að forsetinn sé fyrstur evrópskra þjóðhöfðingja til að taka í notkun „umhverfisvæna bifreið af þessari tegund.“
„Bifreiðin er þannig gerð að unnt er að aka henni á rafmótor einum allt að 60-70 km hraða á klst. Þá er bifreiðin hljóðlaus og algerlega laus við útblástur og mengar þar með ekki umhverfi sitt, segir ennfremur.

Gamli forsetabíllinn, sem orðinn er 13 ára, fer á útboð hjá Ríkiskaupum.

Þeir sem vilja skoða bíl forsetans geta skemmt sér við það á þessari vefsíðu Lexus Europe þar sem er að finna fjölda mynda af bílnum og allar tæknilegar upplýsingar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is