Fimmtudagur 12.07.2007 - 18:24 - Ummæli ()

Mamma í símanum

fergieSöngkonan Fergie úr Black Eyed Peas var um daginn í útvarpsviðtali hjá Ryan Seacrest.

Í miðju viðtalinu kynnti Seacrest óvænt móður söngkonunnar fyrir áheyrendum og bauð hana velkomna í útsendinguna. Það eina sem sú vildi vita var hvort eitthvað væri til í þeim sögusögnum að kærasti Fergie, leikarinn Josh Duhamel, ætlaði sér að reisa strippsúlu í íbúð þeirra.

Hjá Fergie, sem hafði ekki verið látin vita af því að móðir hennar myndi vera með í útsendingunni, varð fátt um svör og sagðist hún fá að vita það fljótlega. Gera má ráð fyrir því að Fergie hafi verið þakklát fyrir að þetta var útvarps- en ekki sjónvarpsviðtal þar sem fregnir segja að hún hafi kafroðnað.

Meira hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is