Bil milli ríkra og fátækra eykst í Bretlandi
Tekjuskiptingin er ójafnari í Bretlandi en áður og bil milli ríkra og fátækra breiðara en verið hefur í 40 ár. Líkur á því að ríkt fólk og fátækt séu nágrannar eru minni en var á áttunda áratugnum.
Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem Joseph Rowntree stofnunin hefur gert og sagt er frá á vef BBC.
Bæði hefur hagur fólks á þeim svæðum þar sem meðaltekjur voru hæstar aukist meira en gerst hefur í samfélaginu í heild. Eins hefur þeim fjölskyldum sem teljast fátækar fjölgað undanfarin 15 ár.
Ríkt fólk og fátækt safnast í sífellt meira mæli saman hvort í sínu lagi á ákveðnum svæðum. Auðugustu heimilin eru flest í úthverfum, einkum í sunnanverðu landinu.
Önnur ný skýrsla bendir til að breska þjóðin sé ósátt við þróunina og telji tekjuskiptinguna of ójafna. „Það er almenn sátt um það að sum störf eigi að vera betur launuð en önnur en bilið milli hálaunastarfa og láglaunastarfa er mun meira en fólk telur að það eigi að vera,“ er haft eftir skýrsluhöfundinum Michael Orton á vef BBC. Hann segir að fólk telji frekar að hálaunamenn beri of mikið úr býtum en að láglaunafólk hafi of lítið.
—-
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is