Blaðarúntur 170707: Útvarp umferðar- ráð úti að aka – Eignast olíufurstar kauphöllina? – Guðni og Valgerður
Mogginn og Fréttablaðið gera góð skil slysinu sem varð við björgunaræfingu undan Straumsvík í gærkvöldi þegar TF-SIF steyptist í sjóinn. Giftusamleg björgun áhafnarinnar er kannski í takt við þá gæfu hefur fylgt rekstri þyrlunnar sem áreiðanlega hefur bjargað tugum eða hundruðum mannslífa þau 22 ár sem hún hefur þjónað Landhelgisgæslunni og okkur hinum. Fyrstu fréttir hermdu að fimm væru um borð en blöðin segja að fjórir hafi lent í sjónum. Dómsmálaráðherra brást röggsamlega við, var mættur á staðinn að tala við áhöfnina og lýsti því strax yfir í sjónvarpsviðtali, tveimur tímum eftir slysið, að búið væri að gera ráðstafanir til að útvega þyrlu til að fylla skarðið eftir TF-SIF.
—-
Umferðarmálin eru að verða leiðarstefið í fréttum sumarsins. Blaðið og Fréttablaðið segja bæði í dag frá því að Jón Gunnarsson, nýr alþingismaður, gagnrýnir að lögreglan reynir ekkert að miðla upplýsingum til þeirra þúsunda sem nú eyða flestum sunnudagskvöldum í kílómetralöngum umferðarteppum á Vesturlandsvegi. Jón telur að nota hefði átt fréttastofu Útvarpsins til að koma upplýsindum til almennings en Blaðið rifjar upp að það er til sérstakt umferðarútvarp hér á landi en það er aldrei að senda út þegar umferðin er mest á vegum landsins. Umferðarútvarpið er gagnslaust ef það þegir stöðugt, segir Blaðið. Lögreglan segir að hún hafi mikið að gera þegar umferðarteppur og árekstrar fara saman og megi þá lítið vera að því að hugsa um að miðla upplýsingum en að þetta sé nú allt í skoðun…
Blaðið segir líka frá því að Miklabraut sé hættulegasta gata Reykjavíkur og slysum þar hafi fjölgað um 45% frá 2005 til 2006 en í Reykjavík allri fjölgaði slysum um 35% milli áranna.
—-
Viðskiptablaðið er fullt af fréttum í dag. Sagt er frá því að olíufurstar í Dubai vilji kaupa OMX-kauphöllina, sem íslenski verðbréfamarkaðurinn er hluti af. Þeir í Dubai eru víst tilbúnir að greiða 20% meira fyrir en mennirnir frá NASDAQ sem áttu fund með mönnum frá OMX á Hótel Keflavík fyrir nokkrum vikum. Það eru víst talsverð samlegðaráhrif af sameiningu OMX og NASDAQ en enginn maður sér nokkurt sérstakt vit í að sameina OMX og kauphöllina í Dubai. Samt vilja olíufurstarnir borga 20% hærra verð og því þurfa hluthafarnir að svara því hvort þeir vilja hámarksarð eða hámarkssamlegð.
Viðskiptablaðið segir líka frá því að gengi Rio Tinto hafi lækkað eftir yfirtökuna á Alcan, markaðurinn telji að of hátt verði hafi verið greitt og efasemdir séu um arðsemi yfirtökunnar. Talið er að með yfirtökunni sé Rio Tinto fyrst og fremst að veðja á að eftirspurn eftir áli muni aukast hraðar en eftirspurn efti röðrum málmum.
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, er líka í viðtali í Viðskiptablaðinu og kemur þar enn í ljós að hann greinir á í grundvallaratriðum við Valgerði Sverrisdóttur, varaformann, um krónuna og evruna. Guðni er líka spurður út í ummæli Valgerðar um Baugsmálið og hvort það sé rétt að forsvarsmenn Sjálfstæðisflokksins hafi talað illa um Baugsmenn. Hann segir: „Ég get staðfest það eitt að það var heitt í kolunum á þessum tíma.“
—-
Og Fréttablaðið ræðir við Helga Rafn Brynjarsson, piltinn sem logið var upp á að hafa drepið hundinn Lúkas. Hann er búinn að fá sér lögfræðing og ætlar að leita réttar síns gagnvart þeim aðilum sem settu lygasöguna af stað og bendluðu svo nafn hans við málið. Fréttablaðið rifjar upp sum ummælin sem látin voru falla á vefnum hundaspjall.is og víðar meðan hysterían var sem mest.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is