Þriðjudagur 17.07.2007 - 11:21 - Ummæli ()

Fjölmiðlar snúa baki við Victoriu

victoria.jpg „Hún virðist vera skemmtileg og ekki húmorslaus. En það nægir ekki alveg til að halda athygli í klukkutíma meðan hún er að leita sér að húsi, liggur í sólbaði og er að sækja um ökuskírteini.“ Svona hljómar gagnrýni í bandarísku blaði um raunveruleikaþáttinn um Victoriu Beckham, sem sýndur var á NBC-sjónvarpsstöðinni. Gagnrýnendur tæta þáttinn í sig.

„Victoria Beckham: Coming to America,“ átti upplega að vera þáttaröð en áður en að útsendingum kom var NBC búin að ákveða að senda bara út klukkutímaþátt. Jafnvel það dugði ekki til að bjarga málinu, – blöðin eru alls ekki hrifin.  New York Post gaf þættinum enga stjörnu af fimm mögulegum.  „Maður situr með opin munninn og fylgist með ósvífninni í fólkinu sem heldur að við séum það heimsk að vilja horfa á þetta,“ segir gagnrýnandi blaðsins, og gerði í ofanálag grín að rókokkó-innréttinginum í húsinu sem Victoria og David eru búin að fá sér í Beverly Hills. „Of fræg, með of mikla peninga,“ segir blaðið um þau hjón, „og það er of miklum peningum eytt í að að blása allt þetta upp.“

New York Times var svipaðrar skoðunar og segir að Victoria Beckham sé „svolítið fræg fyrir að vera svolítið fræg og að það séu teknar margar myndir af henni í Bretlandi.“ „Það hlýtur eitthvað bak við tjöldin að skýra af hverju svona miklu af tíma og myndbandi er eytt í að fylgjast með því þegar Frú David Beckham er að flytja.“

Bandarísku fjölmiðlarnir hafa nánast misst sig yfir Beckham hjónunum síðan þau komu til LA í síðustu viku en þar ætlar David að spila knattspyrnu með LA Galaxy næstu árin. Ætli ævintýrinu sé að ljúka?


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is