Var með hótanir á netinu – ekki sannfærður um að Lúkas sé á lífi
Hilmar Trausti Harðarson 36 ára leikskólakennari á Akureyri segist ekki sannfærður um að hundurinn Lúkas sé á lífi. Hilmar var einn þeirra sem skildi eftir harðorð skilaboð í kommentakerfi á vefsíðu ungs manns sem bendlaður var við dauða hundsins Lúkasar. Ólíkt öðrum gerði hann það undir fullu nafni. Eyjan ræddi við hann í dag.
Guðmundur Rúnar Svansson blaðamaður gerir skrif Hilmars Trausta að sérstöku umtalsefni á bloggsíðu sinni í dag og veltir því fyrir sér hvort það geti verið sjálfsvarnaríþróttum til sóma að maður sem keppi í júdó fyrir hönd KA skuli hóta fólki barsmíðum á opinberum vettvangi?
Meðal annars vitnar Guðmundur í eftirfarandi skrif sem eignuð eru Hilmari Trausta, en skilja má síðustu línuna sem svo að hann sé að vísa til bakgrunnar síns úr júdó-íþróttinni.
Ég skrifa undir fullu nafni því það er eindregið ósk mín að þu leitir mig uppi aumingjinn þinn. Ég hefði mikla ánægju af að taka þig í gegn enda virkar þú heldur væskilslegur! Ég var líklega einn af þeim síðustu sem sáu þennan hund á lífi og leitaði að honum ófáar klukkustundirnar. Það vita allir hvar þú átt heima og þú átt ekki von á góðu greyið mitt. Þú ert sjúkur aumingji! Vona að við sjáumst sem fyrst…þú ættir kannski að goggla mig áður en þú ræðst á mig!!
“Ætlaði ekki að berja hann”
Í samtali við Eyjuna sagðist Hilmar Trausti kannast við þessi skrif en sagði þau ekki vera hótanir og hann teldi þá staðreynd að hann sé júdómaður ekki koma málinu við. Hilmar segir það öfugsnúið að fjölmiðlar eltist við hann vegna þessara ummæla bara af því að hann hefði, einn manna, haft kjark til að skrifa undir nafni. Hann segir að að fjölmiðlar ætti frekar að grafa upp hverjir hefðu hótað alvöru líkamsmeiðingum.“Ég sagði ekki eins og sumir, að þeir vildu sjá blóðið renna. Ég hef ekkert á móti þessum dreng.”Hilmar kannast enn fremur ekki við að hafa sigað mönnum á neinn. Í einum ummælanna sem eignuð eru Hilmari Trausta kemur fram að hann hafi „sett menn“ á unga manninn. Hilmar kannast við skrifin en segir að ekki eigi að skilja þetta sem hótun um barsmíðar:
Ég er persónulega búinn að setja menn á þig..ég veit hvar þú ert og hvert þú ferð. Þetta er lítið land og auðvelt að fylgjast með þér. Please komdu og …..þú ert greinilega gríðarlegt karlmenni….sjáumst um helgina! Það ætti ekki að vera mikið mál að finna þig ; )
Tók dauða Lúkasar inn á sig – ekki sannfærður um að hann sé á lífí
Aðspurður um hvort hann sjái eftir öllu saman nú þegar í ljós er komið að hundurinn sé á lífi segist Hilmar Trausti ekki telja tilefni til þess. “Ég er ekki sannfærður um að hann sé á lífi. Ég hef ekki séð neinar sannanir fyrir því.“Hilmar segir að hann hafi kannski orðið of æstur. „Ég tók þetta kannski svona mikið inn á mig af því að ég tók þátt í að leita að þessum hund kvöld eftir kvöld eftir að hann týndist. En ég er núna farinn að sjá eftir að því að hafa nokkurntíma hafa hitt þennan hund. Það er greinilega mikil gúrka fyrst að fjölmiðlar eru farnir að hringja í mig af öllum mönnum og það á vinnutíma,” sagði Hilmar Trausti í samtali við Eyjuna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is