Föstudagur 20.07.2007 - 16:38 - Ummæli ()

Sjúkraflutningamenn: Ánægðir með heilbrigðisráðherra

vþVernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningmanna er ánægður með nýjan vinnuhóp sem heilbrigðisráðherra hefur skipað til að fara í saumana á rekstri og mönnun sjúkrabíla.

Undanfarið hefur verið greint frá því að víða um land sé vandræðaástand í sjúkraflutningum en heilbrigðisráðherra hefur sett aukið fé í sjúkraflutninga í Borgarnesi auk þess að skipa starfshóp til að fara í saumana ámálinu og leita nýrra lausna.

Vernharður sagðist í samtali við Eyjuna ekki telja að til standi að einkavæða sjúkrabílana þó rekstrarformið sé til skoðunar, heldur sé ráðherrann einfaldlega áhugasamur um hugmyndir landssambandsins um að færa reksturinn yfir til sveitarfélaga og að ríkið semji við slökkviliðin um að þau taki að sér að halda utan um sjúkraflutninga líka.

„Við teljum marga kosti við að hafa þetta allt undir hatti slökkviliðanna. Við áttum góðan fund með ráðherranum á miðvikudag og erum bara bjartsýnir á útkomuna úr þessum vinnuhóp.“ segir Vernharð.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is