Mánudagur 23.07.2007 - 12:07
- Ummæli
()
Hilary Swank klippir af sér hárið fyrir góðan málstað
Leikkonan Hilary Swank mun vera andlit nýrrar herferðar til stuðnings kvenna sem hafa misst hár sitt vegna krabbameins.
Hárvörufyrirtækið Pantene stendur fyrir herferðinni sem hvetur fólk til að safna hári og gefa það svo hægt verði að búa til hárkollur.
Óskarsverðlaunaleikkonan, sem var stutthærð við tökur á myndinni Boys Don´t Cry, mun sjálf safna hári til að gefa og segist hún hlakka til að verða stutthærð á ný.
Swank hefur misst fjölskyldumeðlimi vegna krabbameins og segist stolt að geta tekið þátt í verkefni sem þessu. Hún vonast einnig til að veita öðrum innblástur til að leggja sitt af mörkum.
———————————-
Meira hér.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is