Þriðjudagur 24.07.2007 - 13:52 - Ummæli ()

Læstu sjö ára son sinn inni og fóru í spilavíti

green-bay-packers.jpgBandarísk hjón frá Milwaukee í Bandaríkjunum gengu ansi langt til að geta horft óáreitt á uppáhaldslið sitt keppa í fótbolta.

Hjónin vildu fara í spilavíti til að fylgjast með leik Green Bay Packers, en sjö ára syni þeirra hefði ekki verið hleypt inn með þeim. Því brugðu þau á það ráð að læsa drenginn inni í herbergi sínu svo hann færi sér ekki að voða á meðan þau væru að heiman.

Drengnum gáfu þau ameríska þjóðarréttinn, brauð með hnetusmjöri og sultu, og fötu sem hann átti að nota sem salerni.

Fyrir þetta voru foreldrar drengsins, Scott Scherer og Melanie Hardrath, dæmd til sjö mánaða fangelsisvistar.

————————-

 

Heimild.

 


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is