Þriðjudagur 24.07.2007 - 14:02 - Ummæli ()

Mótmælendur loka fyrir umferð að Straumsvík

saveUm 20 mótmælendur á vegum samtakanna Saving Iceland hafa stöðvað alla umferð að álverinu í Straumsvík. Þá hafa nokkrir mótmælendur farið inn á vinnusvæðið. Lögreglan hefur nú þegar handtekið þrjá mótmælendur. Þetta kemur fram á Vísi.is.

Vitnað er í yfirlýsingu frá samtökunum þar sem fram kemur að með þessu vilji þau mótmæla fyrirhuguðu álveri Rio Tinto-Alcan á Keilisnesi eða Þorlákshöfn. Þá er einnig stækkun álversins í Hafnarfirði mótmælt og nýju álveri í Suður-Afríku sem keyrt verður áfram af kolum og kjarnorku.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is