Fimmtudagur 26.07.2007 - 07:59 - Ummæli ()

Schneider sem Lohan

Rob Schneider kom fram sem Lindsay Lohan í spjallþætti Jay Leno á þriðjudag. Lohan var bókuð í þáttinn en var afboðuð í kjölfar þess að hún var handtekin fyrir ölvunarakstur.

Schneider hljóp í skarðið og mætti sem Lohan með ljósa hárkollu og í stuttum kjól. Hann gerði grín að stanslausi næturbrölti leikkonunnar og var með áfengispela hangandi utan á sér.

Sjónvarpsdrottningin Barbara Walters gagnrýndi Leno fyrir þetta atriði, sagði það mjög illkvittið. Schneider iðrast þó einskis og segir Elvis hugsanlega geta verið á lífi í dag hefði hann verið handtekinn á sínum tíma.

Meira hér.

Hér má svo sjá myndband af uppákomunni frá Youtube.com

[youtube x7vR3bs1tbM]


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is