Föstudagur 27.07.2007 - 12:44 - Ummæli ()

Saving Iceland: Rannsókn lögreglunnar beinist ekki að greiðslum fyrir handtökur

savingEkkert hefur komið fram í rannsókn lögreglunnar á aðgerðum Saving Iceland um að mótmælendur fái greitt fyrir handtökur. Þetta segir Hörður Jóhannesson, varalögreglustjóri í Reykjavík. Hann segir að lögreglan upplýsi Útlendingastofnun um mál þeirra erlendu ríkisborgara sem handteknir hafa verið og að það sé stofnunarinnar að ákveða hvort einhverjum þeirra verði vísað úr landi.

Í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær var sagt að sumir mótmælenda fengju greitt fyrir að láta handtaka sig við mótmæli. Þessu neitar Saving Iceland.

Í bloggrúnti Eyjunnar má sjá hvað bloggarar eru að segja um þetta mál og í athugasemdum í fréttakerfi Eyjunnar er líka verið að ræða þessa frétt Ríkissjónvarpsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is