Sunnudagur 29.07.2007 - 17:20
- Ummæli
()
Britney kærir ljósmyndara fyrir árás á son sinn
Lífvörður söngkonunnar Britney Spears lenti í slagsmálum við ljósmyndara sem reyndi að ná myndum af söngkonunni og börnum hennar þar sem þau voru stödd í Las Vegas.
Tveggja ára sonur Spears, Sean Preston, varð fyrir höggi í slagsmálunum og hefur Britney kært ljósmyndarann fyrir árásina á hann.
Ljósmyndarinn hefur einnig kært lífvörð poppstjörnunnar, Julio Camera, vegna árásarinnar.
Spears á nú í forræðisdeilu við barnsföður sinn, Kevin Federline, og getur þessi atburður leitt til frekari vandræða í þeim málum. Samkvæmt lögum í Kaliforníu má Spears ekki fara úr fylkinu án samþykkis frá Federline, en svo virðist sem hún hafi ekki leitað eftir því.
—————
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is