Sunnudagur 29.07.2007 - 16:21 - Ummæli ()

Morð í Reykavík: Sendibílstjóri sem forðaði helsærðu fórnarlambi eina vitnið

Maðurinn sem skotið var á við Kringlumýrarbraut í morgun, þar sem hann var að skipta um dekk á bíl sínum, náði að forða sér hlaupandi að sendibíl sem kom að. Sendibílstjórinn sá árásarmanninn með riffil í höndunum og tók hinn særða upp í bílinn og flýtti sér af vettvangi.

Að sögn lögreglu reyndi skotmaðurinn hvorki að ógna sendibílstjóranum né hindra að hann kæmist af vettvangi með slasaðan manninn.

Sendibílstjórinn gerði lögreglu viðvart um atburðinn og ók með hinn særða að Sundlauginni í Laugardal en þar taldi hann sig vera í öruggri fjarlægð frá skotmanninum. Lögregla og sjúkralið komu á vettvang og fluttu manninn á bráðamóttöku Landsspítala-háskólasjúkrahús. Hann var með lífsmarki þegar komið var á sjúkrahúsið en var úrskurðaður látinn um kl. 13.

Lögregla leitar enn annarra vitna að málinu, sem hún telur þó að sé að fullu upplýst. Enn sem komið er hefur enginn gefið sig fram sem varð vitni að samskiptum mannanna annar en sendibílstjórinn.

Lögreglan veit ekki enn hvað olli því að það sprakk á hjólbarða hvítrar Ford Taurus bifreiðar mannsins sem var myrtur við Kringlumýrarbraut og hefur ekki upplýsingar um hvort skotið var á bílinn eða hvort tilræðismaðurinn hafði elt hann á staðinn og hver samskipti þeirra höfðu verið áður en til skotárásarinnar kom.

Eins og áður hefur verið greint frá var um ástríðuglæp að ræða en hinn myrti hafði nýlega tekið saman við fyrrverandi eiginkonu morðingjans.

Morðinginn virðist hafa ekið rakleiðis austur að Almannagjá eftir verknaðinn og svipt sig þar lífi með morðvopninu. Í bíl hans á Þingvöllum fannst bréf sem lögregla segir að staðfesti að tengsl eru milli málanna tveggja og litið er á sem ígildi játningar.

—-

Sjá aðrar fréttir Eyjunnar um málið:

Skildi eftir bréf með játningu – fannst látinn á Þingvöllum

Morðið var ástriðuglæpur

Skotinn til bana við gatnamót í Reykjavík


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is