Sunnudagur 29.07.2007 - 18:32 - Ummæli ()

Dagur fagnaðarláta í Írak – sameinast í gleði yfir sigri í Asíukeppni í knattspyrnu

r2175562289.jpgGríðarleg fagnaðarlæti brutust út í Írak í dag þegar íraska knattspyrnulandsliðið tryggði sér Asíumeistaratitilinn með því að leggja Sádí-Arabíu að velli, 1-0, í úrslitaleik í Indónesíu.

Landsliðsfyrirliðinn Younis Mahmoud tryggði Írak sigurinn með skallamarki 19 mínútur fyrir leikslok – þetta er í fyrsta skipti sem Írak vinnur sigur í alþjóðlegri knattspyrnukeppni og brutust út mikil fagnaðarlæti í landinu, sem er venjulega uppspretta frétta af stríði, hörmungum og mannskaða. Um skeið virtist sem þjóðin legði borgarastríð og trúarbragðadeilur til hliðar og sameinaðist í fögnuðu yfir sigri knattspyrnulandsliðsins.

„Þetta snýst ekki bara um knattspyrnu, þetta er miklu mikilvægara en það,“ sagði Jorvan Vieira, brasilískur landsliðsþjálfari Íraks á blaðamannafundi eftir leikinn. „Þetta hefur fært landinu öllu mikla hamingju, þetta snýst ekki um eitt knattspyrnulið, þetta snýst um manneskjur.“

captekw10207281333indonesia_asian_cup_soccer_ekw102.jpg

Enginn landsliðsmannanna hefur sloppið undan hörmungum stríðsins, að minnsta kosti þrír þeirra hafa misst ættingja undanfarna tvo mánuði og léku þeir með sorgarbönd í úrslitaleiknum til minningar um þá 50 sem létust í sprengjuárás sem gerð var á miðvikudaginn í Bagdad meðan mannfjöldi var að fagna því að liðið hafði tryggt sér rétt til að leika úrslitaleikinn í dag.

Í Bagdad flykktist fólk út á götur þegar úrslit lágu fyrir. Hleypt var af skotum og fagnaðarlætin voru gríðarleg. Íraskur almenningur fagnaði því að knattspyrnulandsliðið hefði sýnt að þjóðin gæti sameinast en um leið lét fólk í ljós vonbrigði sín með að stjórnmálamönnum þjóðarbrotanna þriggja sem byggja landið hefði ekki tekist hið sama. „Þessar hetjur sýna umheiminum hvernig Írak er í raun og veru. Þeir hafa gert þjóðinni gagn, öfugt við stjórnmálamenning sem stela af þjóðinni og drepa hverjir aðra, “ sagði Sabah Shaiyal, 43 ára lögreglumaður í Bagdad. „Við erum stolt af leikmönnunum en ekki af ágjörnum stjórnmálamönnum. Landsliðið hefur sýnt okkur að það er til eitthvað sem heitir eitt, sameinað Írak.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is