Blaðarúntur 010807: Ratsjárstofnun flýgur undir radar – Dallas Íslands
Það er athyglisvert mál í uppsiglingu með rekstur Ratsjárstofnunar. Hún hefur verið rekin í tvo áratugi án lagaheimildar. Reksturinn hefur verið kostaður af Bandaríkjamönnum, sem rukkuðu skattgreiðendur um 1.200 milljónir á ári vegna hans en íslenska ríkið telur reksturinn kosta 800 milljónir. Stofnunin er nú að færast undir íslenska ríkið en engar fjárheimildir eru tiltækar vegna rekstursins, aðeins fyrirheit um 241 milljóna króna aukafjárveitingu. Starfsmenn hafa hingað til verið á launum, sem eru allt önnur og hærri en íslenskir ríkisstarfsmenn eiga að venjast – en þau eru leyndarmál. Allt þetta má lesa um í Fréttablaðinu í dag, á forsíðu og blaðsíðu 6, og ekki síst í leiðara Þorsteins Pálssonar.
Viðskiptablaðið er með eitt skemmtilegasta mál dagsins. Í Árborg er verið að skipuleggja 450 lóðir undir búgarða þar sem fólk getur valið heilsársbústu í sveit með sömu þjónustu og í þéttbýli. Þarna eru lóðirnar rúmlega hektari að stærð og sumar talsvert stærri. Samgöngubætur stytta sífellt vegalengdir og auka eftirspurn fólks eftir þeim gæðum sem felast í því að sameina kosti búsetu í borg og sveit. Árborg er að bregðast við þróuninni með þessum hætti og búa til Dallas Íslands.
Á forsíðu Moggans er spurt hvort veðurspá hafi áhrif á ferðaáætlanir fólks? Mogginn spyr Umferðarstofu og lögregluna álits en líti nú hver í eigin barm.
Á forsíðunni er líka frétt um að óskráðar fornminjar hafi farið undir vatn í öllu klúðrinu sem einkennir Múlavirkjun í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Í fréttinni er þó mikilvægri spurningu látið ósvarað. Þarna segir að „Árbók Fornleifafélagsins frá árinu 1961″ segi að „merk landnámshjón“ hafi dvalið fyrir „1000 árum“ í dalnum. Inni í blaðinu kemur fram að líklega heitir dalurinn Seljadalur en ekki er upplýst hvað „merku landnámshjónin“ hétu. Skyldi maður ætla að þess sé getið í „Árbók Fornleifafélagsins“ og væntanlega með vísun til skriflegar heimildir, líklega einhverja Íslendingasöguna. Líklega eru fleiri en einn lesandi óþreyjufullir eftir því að fá að vita til hvaða sögupersónur þarna er um að ræða.
Spurningar um menningarlegt varðveislugildi dvalar- og/eða áningarstaða sögupersóna bíða betri tíma.
Áningarstaðir og sögupersónur koma líka við sögu í Fréttablaðinu þar sem er undarleg frétt um jeppa Ómars Ragnarssonar sem hafði vetrardvöl í Hálslóni. Ómar hefur nú látið kafara draga jeppann upp úr lóninu. Þetta tengist heimildarmyndinni sem Ómar hefur verið að taka en bíllinn er þar sögupersóna.
Á baksíðu Moggans og inni í blaðinu og á forsíðu Blaðsins kemur fram að aldrei hafi Íslendingur greitt jafnháa fjárhæð að raungildi í skatta og Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, gerir í ár.
Ummæli dagsins á upplýsingafulltrúi 365 í Fréttablaðinu: „Engin leið er að segja til um hversu mikið SkjárSport hefði hækkað áskriftarverðið ef boltinn hefði verið áfram þar.“ Þarna er verið að ræða um verðið á enska boltanum, sem verður mun dýrari hjá 365 en var hjá Símanum í fyrra, líka fyrir M12 áskrifendur til 20 ára með Sýn og allan pakkann.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is