Nicole Richie opinberar verst geymda leyndarmál Hollywood
Nú hefur Nicole Richie loksins viðurkennt það sem lengi hefur verið slúðrað um, að hún sé ólétt.
Richie á von á barni með söngvara hljómsveitarinnar Good Charlotte, Joel Madden, og sagðist vera komin fjóra mánuði á leið í viðtali við sjónvarpskonuna Diane Sawyer.
Í viðtalinu, sem birtist næsta föstudag, á hún að hafa tjáð sig opinskátt um villtan lífstíl sinn og ungu stjarnanna Paris Hilton, Lindsey Lohan og Britney Spears.
Richie er á leið í fjögurra daga fangelsisvist fyrir að hafa keyrt drukkin. Hún segist helst vilja biðja afsökunar alla þá sem misst hafa ástvini í bílsysi þar ölvunarakstur kom við sögu, en það muni hún gera með að taka ábyrgð á því sem hún hafi gert eins og fullorðin manneskja, og fari í fangelsi.
Nicole Richie er dóttir söngvarans Lionel Richie og er hvað þekktust fyrir að hafa verið með Paris Hilton í raunveruleikaþættinum, The Simple Life.
———-
Meira hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is