Bloggrúntur 020807: Björn og RÚV – Guðlaugur Þór tekinn á beinið – sannleikurinn um veðrið
Björn Bjarnason bloggar í gærkvöldi og veltir því upp hvort það sé ekki réttast að selja RÚV, að frátalinni Gufunni.
„Hlutafélagavæðing RÚV hafði ekki að markmiði að auðvelda RÚV að kaupa starfsmenn annarra stöðva og veita þeim ríkisskjól. Væri ekki best,að selja batteríið allt (fyrir utan gömlu gufuna), svo að snillingarnir gætu keppt við Baugsmiðlana á jafnréttisgrundvelli, án þess að fá nefskatt?“
Segir dómsmálaráðherrann sem var jú menntamálaráðherra og yfirmaður RÚV árum saman. Snillingarnir, það eru væntanlega Páll Magnússon og Þórhallur Gunnarsson, sem við er átt. En það einkennir þessa ríkisstjórn, sem nýtur meira en 80% fylgis, að ráðherrar eru óhræddir að tjá sig um mál sem heyra undir aðra ráðherra, slíkt sást vart í tíð fyrri stjórnar.
Sigurður Kári, samþingmaður og flokksbróðir, Björns, er strax búinn að taka undir með honum á sínu bloggi.
—-
Gamall samstarfsmaður Björns, Friðjón Friðjónsson, eðalbloggari hér á Eyjunni og fyrrverandi stjórnarmaður í SUS, tekur Guðlaug Þór, heilbrigðisráðherra aldeilis á beinið í færslu sem hann setti inn í nótt:
Hvað segir maður um þingmann sem er fyrsti flutningsmaður 16 frumvarpa á síðasta kjörtímabili og þar af 4 sinnum um sama málefni? Á hverju þingi lagði hann fram frumvarp um þetta hugðarefni sitt, það er fjórðung allra frumvarpa sem þingmaðurinn hefur lagt fram í eigin nafni. Er ekki hægt að segja óhikað, að málið sé viðkomandi þingmanni hjartans mál? En hvað á maður svo að halda, ef sami þingmaður verður ráðherra og lætur það verða eitt sitt fyrsta verk að gefa það út að hann ætli ekki að beita sér fyrir viðkomandi máli?
Er rökrétt að draga þá ályktun stjórnmálamaðurinn hugsjónalaus eiginhagsmunapotari sem er bara í pólitík fyrir eigið egó?
Í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík á liðnum vetri var Friðjón í framvarðarsveit stuðningsmanna Björns Bjarnasonar og löngum einn hans kröftugasti málsvari. Sú barátta var hörð – Björn féll fyrir Guðlaugi, sem kunnugt er. Líklega eru þau átök geymd en ekki gleymd, ef ráða má af þessari færslu Friðjóns í tilefni frétta af því að Guðlaugur Þór ætli ekkert að gera til þess að stuðla að sölu áfengis í matvöruverslunum eða utan ÁTVR.
—-
Loks veðurspá helgarinnar frá Einari Sveinbjörnssyni, veðurfræðingi, sem nú er hættur á Veðustofunni og birtir eigin spá á sínu frábæra veðurbloggi. Undanfarin ár hefur manni stundum fundist að veðurspámenn væru hræddir að spá hreint út um verslunarmannahelgarveðrið af ótta við reiði aðstandenda útihátíða. En það er enginn slíkur tónn í Einari. Samkvæmt spá hans verður skítaveður á föstudag og laugardag, en hlýjast og etv úrkomulaust inn til landsins á Suðurlandi á laugardag. Sunnudagur verður mun betri syðra en nyrðra. Lesa spá Einars hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is