Fimmtudagur 02.08.2007 - 08:49
- Ummæli
()
Sigurvegari America´s Next Topmodel vísar sögusögnum um átröskun á bug
Sigurvegari 8. þáttaraðar America´s Next Topmodel, Jaslene Gonzales, hefur skrifað yfirlýsingu á heimasíðu sína þar sem hún segist ekki þjást af anorexiu.
Í þáttunum var Jaslene jafnvel talin vera horuð miðað við aðrar fyrirsætur, en nýlega hafa birst myndir af henni sem ýta undir sögusagnir um að hún sé með einhverskonar átröskun.
Í yfirlýsingunni staðhæfir hún að hún þjáist ekki af anorexiu. Hún segist hafa mikið sjálfstraust og vera ánægð með sjálfa sig og því þurfi hún ekki að svelta sig til að trúa því að hún líti vel út.
9. þáttaröð America´s Next Topmodel hefst í Bandaríkjunum í lok september.
——-
Meira hér.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is