Miðvikudagur 08.08.2007 - 07:57 - Ummæli ()

Matt Damon skilar mestu í kassann miðað við laun

Matt DamonLeikarinn Matt Damon er efstur á lista Forbes yfir hlutfallslegan gróða kvikmynda sem hann kemur að miðað við hvað hann þiggur í laun fyrir vinnu sína.

Þrjár síðustu myndir hans (Bourne Ultimatum er ekki með í tölunum) hafa skilað 29 dollurum fyrir hvern dollar sem hann hefur fengið í laun.

Brad Pitt er í öðru sæti listans með 24 dollara á meðan Vince Vaughn og Johnny Depp deila þriðja sætinu með 21 dollara.  Leikkonan Jennifer Aniston er svo í fimmta sæti með 17 dollara gróða á launadollara.


Hér má sjá nánar um þetta á síðu Forbes.
Hér má sjá umfjöllun E! um þetta mál.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is