Föstudagur 10.08.2007 - 09:54 - Ummæli ()

17 skip svipt veiðileyfi – tvö fóru kvótalaus á sjó

Fiskistofa svipti 17 skip veiðileyfi í júlímánuði um skamman tíma vegna ýmissa brota gegn lögum. Í öllum tilfellum er um að ræða skip í eigu smærri útgerða. Fimm voru svipt vegna veiða umfram aflaheimildir – þar af tvö fyrir að veiða án nokkurra aflaheimilda – en 12 fyrir að standa ekki skil á afladagbókum.

Friðfinnur SU frá Breiðdalsvík var sviptur leyfi til veiða í tvær vikur fyrir að koma að landi með afla umfram heimildir. Þetta var í annað skiptið á fiskveiðiárinu sem gripið er til slíkra aðgerða vegna Friðfinns. Björgmundur ÍS frá Bolungarvík missti einnig veiðileyfið af sömu ástæðu, sem og Börkur frændi HF, sem skráð er á Vopnafirði.

Þá voru tvö skip svipt leyfi til veiða fyrir að fara á sjó án nokkurra aflaheimilda,. Þau voru Jóhanna ÁR, skráð á Selfossi og Sandvíkingur ÁR, skráður í Þorlákshöfn.

Lista yfir tólf skip sem svipt voru leyfi til veiða þar til þau skila inn afladagbókum vegna veiða í maí er að finna á vef Fiskistofu.

—-

Sjá vef Fiskistofu..


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is