Viðskipti Mánudagur 13.08.2007 - 15:53 - Ummæli ()

30% úr móðurfélagi Símans, Mílu og Skjás eins á markað fyrir áramót – undirbúningur í gangi

linda_bjork_waage1.jpgLinda Björk Waage, upplýsingafulltrúi Símans, segir að ekki liggi fyrir hvenær 30% hlutafjár í Skipti ehf., félaginu sem á Símann, Mílu, og önnur fyrirtæki tengd símanum verða sett á markað og boðin almenningi og fjárfestum til kaups eins og kveðið er á um í samningi Skipta við ríkisstjórnina frá því 28. júlí 2005.

Eins og Eyjan sagði frá í dag var kveðið á um það í samningum einkavæðinganefndar við Skipti að 30% hlutafjár í félaginu skyldu boðin almenningi og fjárfestum til kaups á markaði fyrir árslok 2007 og samtímis skyldi skrá Símann á aðallista Kauphallarinnar.

„Þetta er í ferli og það verið að vinna að skráningarlýsingu og fleiru,“ sagði Linda í samtali við Eyjuna, spurð að því hvenær af þessu yrði. „Það er ekki búið að fastsetja dagsetningu.“

Hún var spurð hvort sá óróleiki sem verið hefur á markaði undanfarnar vikur hefði áhrif á þessi áform eða tímasetningu sölunnar en hún sagði svo ekki vera enda væri Skipti bundið af samningi við ríkið um að selja 30% fyrir áramót, í hvaða mánuði sem það yrði, og leita eftir skráningu í úrvalsvísitölunni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is