Karl Rove hættir um mánaðamót: Ætlar að skrifa bók um Bush
Karl Rove hyggt skrifa bók um valdatíð George W. Bush forseta eftir að ann lætur af störfum í lok mánaðarins. Rove skýrði frá því í viðtali við Paul Gigot, ritstjóra Wall Street Journal í dag að hann ætli að láta af störfum um mánaðamót. Rove hefur verið helsti ráðgjafi George W. Bush, Bandaríkjaforseta.
Rove segist hafa íhugað að hætta störfum í upphafi árs 2006, en ákveðið að sitja áfram. Hann hefði þó ákveðið að hætta störfum nú, til að geta eytt meiri tíma með fjölskyldu sinni.
Rove hefur verið helsti ráðgjafi forsetans síðan hann tók við völdum í janúar 2001, og er af mörgum talinn “heilinn” að baki valdatíðar Bush.
Stjórnmálaskýrendur eignuðu honum sigur Bush og Repúblíkana í kosningunum 2000, 2002 og 2004. Gagnrýnendur og pólítískir andstæðingar hafa bent á að Rove notaðist mikið við “neikvæða” kosningabaráttu og oft ósanngjarnar árásir, m.a. gegn John Kerry í kosningabaráttunni 2004.
Afsögn Rove kemur öllum bandarískum stjórnmálaskýrendum á óvart. Bill Kristol, ritstjóri The Weekly Standard, sem er talinn standa mjög nærri forsetanum, sagði í viðtal við Fox í morgun að ákvörðun Rove kæmi sér mjög á óvart, og það væri mjög sérkennilegt að Rove segði af sér á þessari stundu.
Wall Street Journal
greinir frá því að Rove hyggist skrifa bók um valdatíð Bush.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is