Ginnungagap fundið í geimnum?
Setjið þetta í flokk með furðulegustu fyrirbærum í heimi sem enginn skilur hvað í andsk… er. Stjörnfræðingar við Minnesota-háskóla virðast nefnilega hafa fundið sjálft Ginnungagap, eða kannski leifarnar af því, úti í geimnum. Tómið sem þeir fundu er risavaxið, næstum milljarður ljósára í þvermál. Þar er ekkert, engin stjörnuþoka, hvorki stjörnur né plánetur, ekki einu sinni ein einasta andefnis-arða.
„Svona stórt holrými hefur aldrei fundist áður í geimnum,“ segir Lawrence Rudnick, stjörnufræðiprófessor, í samtali við Reuters „og við áttum heldur aldrei von á að finna neitt viðlíka svona stórt.“
Svæðið fannst þegar verið var að skoða svæði í himingeimnum sem þótti óvenjulega kalt með svonefndum Wilkinson Örbylgjukliðskanna. Svæðið er á himni á móts við Eridanus stjörnuþyrpinguna, suðaustur af Orion.
Sjá myndir af fyrirbærinu og nánari upplýsingar á vef National Radio Astronomy Observatory.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is