Þriðjudagur 28.08.2007 - 19:59 - Ummæli ()

Dópsali í Belfast: Tjargaður,fiðraður og bundinn við ljósastaur

dopsali-1.jpgMyndirnar hér að neðan eru ekki af saklausum grikk vinahóps að steggja væntanlegan brúðguma, heldur af aðgerðum íbúa í Suður-Belfast á N-Írlandi gegn dópsala sem ítrekað hefur verið kvartað undan við yfirvöld, án árangurs.
Fórnarlambið, þrítugur karlmaður, mátti þola að grímuklæddir menn helltu yfir hann tjöru og síðan fiðri að konum og börnum ásjáandi og hengdu síðan um háls hans skilti með áletruninni: „Ég er dópsalaóþverri.“ Frá þessu er skýrt í Daily Mail í dag.
Samtökin Ulster Defence Association, sem hafa oft tekið lögin í eigin hendur, neita að hafa
komið nálægt þessum aðgerðum.

Frankie Gallagher í rannsóknardeild lögreglunnar í Ulster, sagði talsmenn UDA halda því fram að þeir hafi einmitt ráðlagt íbúum Ulster að leita til lögreglu vegna mannsins, en staðreyndin sé sú að samfélagið hafi ekki trú á aðgerðum lögreglunnar lengur. Fólk sé orðið langþreytt á aðgerðarleysi yfirvalda og reiðin kraumi undir niðri.

dopsali2.jpgdopsali3.jpgMeðferðin á manninum, sem minnir helst á aðferðir IRA forðum gegn lögbrjótum samfélagsins, vakti þó mikil og hörð viðbrögð fólks, jafnvel þó UDA-menn neiti að eiga nokkurn þátt í atburðinum. Þeir hafa einmitt verið hvattir til þess undanfarið að stunda ekki ofbeldi og leggja byssum sínum og öðrum vopnum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is