Þriðjudagur 28.08.2007 - 18:26 - Ummæli ()

Losnaði úr fangelsi í dag eftir að hafa setið saklaus inni í 18 ár

fangi.jpgHinn 39 ára gamli Dwayne Allen Dail var í dag hreinsaður af ákærum um að hafa nauðgað 12 ára gamalli stúlku árið 1987. Niðurstöður nýrrar DNA-rannsóknar hreinsuðu Dail af ákærunni, en hann hafði setið í fangelsi í 18 ár. Þetta kemur fram á breitbart.com.

Ráðist var á stúlkuna af ókunnum manni sem braust inn um glugga á íbúð þar sem hún svaf og í sakbendingu taldi hún sig bera kennsl á Dail sem árásarmanninn. Hár sem fannst í íbúðinni, og var talið geta verið af Dail, renndi enn frekar stoðum undir dóminn. Það kom hins vegar í ljós að DNA-sýni, sem tekin voru af náttkjól stúlkunnar, tilheyrðu öðrum manni sem þegar situr í fangelsi.

Héraðsdómslögmaðurinn Branny Vickory fór upphaflega fram á það við dómara að vísa málinu frá vegna nýrra sönnunargagna en málið hefur velkst um í kerfinu í langan tíma.
Dail faðmaði lögmanninn sinn fast og innilega þegar hæstaréttardómarinn í Wayne-sýslu, Jack Hooks Jr., ógilti dóminn.

„Ég nýt mikillar blessunar,“ sagði Dail þegar hann síðan faðmaði móður sína meðan aðrir fjölskyldumeðlimir stóðu grátandi álengdar. Hann sagðist aldrei hafa reiknað með að verða sýknaður.

North Carolina Actual Innocence Commission hóf að skoða mál Dails árið 2001 og sótti þá fast að DNA-sýnin yrðu skoðuð aftur. Lögmaður Dails og formaður North Carolina Actual Innocence Commission sagði Dail ítrekað hafa haft samband við borgaryfirvöld, stjórnmálamennn og samtök hennar í von um einhver tryði á sakleysi hans.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is