Miðvikudagur 29.08.2007 - 20:46 - Ummæli ()

Missti hluta höfuðkúpu í heilaaðgerð vegna bilaðs ísskáps

heili.jpgÞjóðverji, sem gekkst undir heilauppskurð, þurfti að sætta sig við að efri hluti höfuðkúpunnar, sem var fjarlægð meðan á aðgerðinni stóð, eyðilagðist í ónýtum ísskáp sjúkrahússins. Kuldinn í ísskápnum var ekki nægur, þannig að sá hluti höfuðkúpunnar sem var fjarlægður var ónothæfur þegar til átti að taka. Læknar björguðu málunum með höfuðkúpubút úr plasti. Þetta kemur fram á reuters í dag.

Maðurinn sætti sig ekki við þetta og höfðaði mál. Hann fór fram á að minnsta kosti 20.000 evrur í skaðabætur og hélt því fram að hann þjáðist af sífelldum höfuðverk vegna plastkúpunnar, sem þar að auki hefði truflað jafnvægisskyn hans og gerði hann sérlega viðkvæman fyrir hverskonar veðrabrigðum.
Með aðstoð sérfræðinga komst rétturinn þó að þeirri niðurstöðu að aðgerðin sjálf hefði vissulega valdið manninum óþægindum, en missir efri hluta höfuðkúpunnar væri honum ekki til neinna óþæginda. Þeir héldu því meira að segja fram að plastkúpuhlutinn væri betri en hinn upprunalegi.
Rétturinn ákvað á þessum forsendum að 3.000 evrur væru hæfilegar bætur handa manninum, sem var að vonum ekki ánægður með niðurstöðuna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is