Owen Wilson: Notaði morfín og amfetamín í 3 daga fyrir sjálfsmorðstilraun
Owen Wilson var búinn að nota amfetamín og morfínlyf í þrjá daga áður en hann reyndi að fremja sjálfsmorð á dögunum, að því er Sky fréttastofan fullyrðir.
Oxycodone heitir lyfið sem Owen hafði verið að taka og er náskylt Contalgin, ópíumlyfinu sem íslenskir fíklar nota í staðinn fyrir heróín. Í Bandaríkjunum eru Oxycodone og Oxycontin kölluð heróín fátæka mannsins en þar í landi draga þessi sterku en auðfengnu verkjalyf fjölda manna til dauða á ári hverju.
Wilson tók að lokum of stóran skammt af lyfinu og líka metamfetamíni og skar sig á púls. Í þannig ástandi var hann þegar bróðir hans kom að honum síðar og hringdi á sjúkrabíl.
Læknar björguðu lífi Wilsons með því að sprauta í hann móteitri við bæði morfíni og amfetamíni. Hann liggur nú á Cedars-Sinai Medical Centre í Los Angeles og er sagður við ágætis heilsu. Í yfirlýsingu segist hann ætla að ná sér í einrúmi.
Enn er ekki vitað með vissu hvers vegna Owen, sem er 38 ára, og hefur gengið allt í haginn á sínum leikferli undanfarin ár, vildi stytta sér aldur. Fréttum ber ekki saman.
Sumir vina hans segja að hann hafi tekið mjög nærri sér að sjá myndir af Kate Hudson með öðrum manni en þau slitu sambandi sínu fyrr í sumar. Vinir Wilsons segja að hann hafi verið þunglyndur mánuðum saman og telja að þunglyndið hafi byrjað í kjölfar skilnaðarins við Kate Hudson.
Aðrir segja að hann hafi reynt að drepa sig eftir að hafa lent í rifrildi við vin sinn. Nágranni hans segir að Wilson hafi ekki verið einn þegar þetta gerðist því að fyrr um kvöldið hafi hann séð Wilson koma heim í fylgd annars manns.
Þeir sem vel eru að sér í Hollywood og kvikmyndaheiminum telja að sjálfsmorðstilraunin breyti engu um frama Wilsons, hann er á beinu brautinni. „Owen Wilson hefur gott orð á sér og flestir kenna í brjósti um hann núna,“ segir ónefndur sérfræðingur sem Sky vitnar í.
—-
Sjá frétt Sky.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is