Umboðsmaður Alþingis átaldi stjórnvöld fyrir að vanrækja Vinnumálastofnun
Umboðsmaður Alþingis lýsir efasemdum um að ríkisvaldið hafi gripið til nægjanlegra aðgerða til að bregðast við auknu álagi á Vinnumálastofnun, að því er fram kemur í úrskurði hans frá því í síðasta mánuði. 7 og 9 mánuðir liðu frá því að félagsmálaráðuneytið óskaði eftir umsögn stofnunarinnar um tvær kærur sem ráðuneytinu bárust vegna atvinnuleysis sem synjað hafði verið og þangað til þeim var svarað.
Eins og fram kom í frétt Eyjunnar í dag hefur félagsmálaráðuneytið óskað eftir stjórnsýsluendurskoðun Ríkisendurskoðunar á starfsemi Vinnumálastofnunar, sem hefur það hlutverk m.a. að veita atvinnuleyfi vegna erlendra starfsmanna hér á landi og fylgjast með starfsemi starfsmannaleiga. Ráðuneytið óskaði nýlega eftir stjórnsýsluúttektinni og í samtali við Eyjuna í morgun sagði aðstoðarmaður félagsmálaráðherra að hún ætti sér ekkert ákveðið tilefni, – t.d. ekki rútuslysið á Austurlandi um helgina þar sem 20 óskráðir, erlendir starfsmenn verktaka við Kárahnjúka voru á ferð.
Í álitinu er tekið á kvörtun fyrirtækis sem synjað hafði verið um atvinnuleyfi fyrir tvo erlenda starfsmenn. Þar kemur fram að Umboðsmaður telur að afgreiðsla málanna tveggja hafi brotið gegn reglu stjórnsýslulaganna um skjóta málsmeðferð og einnig hafi upplýsingaskyldu gagnart málsaðila ekki verið sinnt.
Í niðurstöðunni lýsir Umboðsmaður efasemdum um að ríkisvaldið hafi gætt þess að Vinnumálastofnun og félagsmálaráðuneytið hefðu mannafla til þess að sinna aðkallandi verkefnum á sviði vinnumála vegna mikillar aukningar á innflutningi vinnuafls undanfarin ár. úrskurðurinn var kveðinn upp 7. júlí sl og kemur þar fram að af 125 kærum sem borist hafi til félagsmálaráðuneytisins undanfarna 18 mánuði vegna synjunar Vinnumálastofnunar á því að veita útlendingum atvinnuleyfi séu 34 enn í vinnslu.
Í niðurstöðum sínum segir Umboðsmaður: „Af svörum ráðuneytisins til mín er heldur ekki að sjá að gripið hafi verið til aðgerða til að bregðast við auknu álagi á Vinnumálastofnun, en rúmir sjö mánuðir liðu frá því að ráðuneytið óskaði eftir umsögn stofnunarinnar vegna kæra A þar til umsögn barst vegna annars atvinnuleyfisins og níu mánuðir þar til umsögn barst vegna hins leyfisins. Er sú framkvæmd jafnframt ekki í samræmi við þær kröfur sem leiða af [kröfum stjórnsýslulaga um hraða málsmeðferðar].“
Síðan segir Umboðsmaður: „Ég tel rétt að árétta að á stjórnvaldi hvílir sú skylda að sjá til þess að tiltæk sé nauðsynleg þekking og nægt starfsfólk til þess að stjórnvaldið geti sinnt lögbundum verkefnum í samræmi við lögbundna tímafresti og reglur stjórnsýsluréttar, þ. á m. reglur um málshraða. Sé raunin sú að stjórnvald telji sig ekki geta innt af hendi þau verkefni sem því eru falin innan lögmælts frests verður að gera þá kröfu að það geri nauðsynlegar ráðstafanir til að úr slíku verði bætt. Aðstaðan kann að vera sú að drátt á afgreiðslu mála megi rekja til þess skipulags sem haft er á málum hjá stjórnvaldi, þ.m.t. á verkaskiptingu starfsmanna. Ef yfirstjórn stjórnvaldsins telur á hinn bóginn að það geti ekki á grundvelli þeirra heimilda sem fyrir liggja í fjárlögum hverju sinni sinnt verkefnum nægjanlega leiðir það af því almenna hlutverki stjórnvaldsins að framkvæma lögin að gera þarf fjárveitingarvaldinu grein fyrir málinu. Það er síðan fjárveitingarvaldsins, þess sama löggjafarvalds og mælti fyrir um frestinn til afgreiðslu umræddra mála, að taka afstöðu til málsins. [...] Löggjafinn hefur talið tilefni til þess að mæla með ákveðnum hætti fyrir um að hraða skuli afgreiðslu stjórnvalda á þessum málum. Það er því mikilvægt að félagsmálaráðuneytið geri nauðsynlegar ráðstafanir til þess að hraða afgreiðslu mála vegna atvinnuleyfa útlendinga og þá sérstaklega að því er varðar þær ákvarðanir sem kærðar eru til ráðuneytisins með stjórnsýslukæru.“
—-
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is