Mánudagur 03.09.2007 - 08:21
- Ummæli
()
Felix strax orðinn 5 stiga fellibylur
Annar fellibylur haustsins í Karíbahafi er skyndilega kominn í 5. stigs styrkleika að sögn Bandarísku fellibylamiðstöðvarinnar. Vindhraði í bylnum er þegar kominn upp í rúmlega 270 km og eyðileggingarmátturinn gríðarlegur. Ríkisstjórn Honduras hefur sent út formlega viðvörun samkvæmt frétt CNN.
Í 5. stigs fellibyl getur vatnborð hækkað um rúmlega 6 metra.
Fellibylurinn færist í vesturátt eftir sunnanverðu Karíbahafi og stefnir á Mið-Ameríku og gæti verið kominn á land á morgun.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is