BNA: 61% segja Bush hafa verið of ákafan að ráðast inn í Írak
Nærri tveir að hverjum þremur Bandaríkjamönnum telja að George W. Bush bandaríkjaforseti hafi verið of ákafur í að lýsa yfir stríði gegn Írak og að hann hafi staðið sig illa í að halda á málum eftir að stríðið hófst, samkvæmt nýrri skoðanakönnun.
61% af 2.700 Bandaríkjamönnum sem Harris skoðanakönnunarfyrirtækið leitaði til töldu að Bush hefði verið „of ákafur“ þegar hann sendi innrásarlið til Íraks í mars árið 2003 og aðeins 26% töldu að hann hefði ekki verið of ákafur. Í maí 2003, tveimur mánuðuum eftir astríðið hófst, töldu aðeins 43% að Bush hefði verið of ákafur í að lýsa yfir stríði en en helmingur taldi að hann hefði ekki flýtt sér um of.
Í könnuninni kom einnig fram að tveir þriðju Bandaríkjamanna gefa Bush lélega einkunn fyrir hvernig hann hefur haldið á málum sem snúa að stríðsrekstrinum undanfarna mánuði.
—-
Sjá hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is