HR og Bifröst íhuga sameiningu
Háskólinn í Reykjavík og Háskólinn á Bifröst íhuga að sameinast. Rektorar skólanna tveggja hafa hist til að ræða málið, og það hefur einnig „ratað inn fyrir veggi menntamálaráðuneytisins,“ að því er fram kemur í Viðskiptablaðinu í dag.
Blaðið segir málið á viðkvæmu stigi og skoðanir um málið eru sagðar skiptar innan skólanna. Fylgjendur sameiningar telji að sameinaður skóli yrði mun hagkvæmari rekstrareining sem geti boðið nemendum mun betri þjónustu en á Bifröst hafa menn áhyggjuar af því að HR mundi gleypa Bifröst við sameiningu.
Í viðtali við Ríkisútvarpið í morgun sagði Svava Grönfeldt, rektor HR, að engar viðræður hafa átt sér stað og sameining sé ekki á döfinni nú, hvað sem framtíðin leiði í ljós.
—-
Nánar í Viðskiptablaðinu.
Frétt RÚV.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is