Fjármagnstekjuskattur dugar fyrir öllum útgjöldum menntakerfisins
Fjármagnstekjur Íslendinga á fyrstu sjö mánuðum ársins nema nærri 209 milljörðum króna. Það eru meiri fjármagnstekjur en fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu á öllu árinu og gerir meira en nægja fyrir öllum útgjöldum ríkissjóðs til menntamála.
Þetta kemur fram í frétt á vef Samtaka atvinnulífsins. „Ef fram heldur sem horfir verða fjármagnstekjur Íslendinga á árinu 300-400 milljarðar króna, en þær geta sveiflast töluvert. Verði það niðurstaðan mun ríkið fá í sinn hlut 30-40 milljarða króna í fjármagnstekjuskatt. Hér er um að ræða nýjar tekjur fyrir samfélagið sem hafa gríðarleg áhrif, bæði á afkomu ríkissjóðs og hagkerfið í heild,“ segir þar.
„Samkvæmt upplýsingum fjármálaráðuneytisins námu gjöld ríkissjóðs til menntamála á fyrstu sjö mánuðum ársins 2007 tæpum 23 milljörðum króna og ef heldur fram sem horfir verður fjármagnstekjuskatturinn farinn að fjármagna öll útgjöld ríkisins til menntamála innan skamms og vel það,“ segir ennfremur.
—-
Sjá hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is