Fimmtudagur 06.09.2007 - 12:20 - Ummæli ()

Noregur: Halvorsen hætti við þátttöku sjónvarpsþætti vegna ónógrar förðunar

_41185384_kristin203i.jpgKristin Halvoresn, leiðtogi Sosialistisk Venstreparti í Noregi, afboðaði þátttöku sína í yfirheyrslu í sjónvarpi vegna væntanlegra kosninga í landinu af því að tveimur förðunarfræðingum TV2 í Noregi voru aðeins ætlaðar 10 mínútur til þess að vinna í förðun og hárgreiðslu hennar fyrir þáttinn.

„TV2 gerði Halvorsen tilboð um 10 minútur í sminki hjá tveimur sminkum,“ segir Tor Godal, framleiðandi hjá TV2 í Noregi segir í samtali við VG og jafnframt að þá hafi borist boð frá SV um að Halvorsen mundi ekki mæta í þáttinn. Senda átti út þáttinn í beinni útsendingu í gærkvöldi. Þess í stað var sendur út fréttaskýringaþáttur um stefnu SV. Kristin Halvorsen neitar því í samtali við VG að kröfur hennar um amk 15 mínútna förðun í stað 10 mínútna. En TV2 segir að flokkur hennar hafi gefið skýrt til kynna að hún hefði aðeins til aflögu 30 mínútur til þátttöku í þættinum. „SV lagði til að 10 mínútur færu í yfirheyrsluna en 20 mínútur í förðun. Ég gaf þeim skilaboð um að ég mundi athuga málið en héldi að það gæti ekki gengið af því að það væri ósanngjarnt gagnvart öðrum flokksleiðrogum.“
Niðurstaðan varð sú að Halvorsen afþakkaði þátttöku í þættinum.

Sjá frétt VG.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is