Mánudagur 10.09.2007 - 13:21 - Ummæli ()

Saving Iceland: Aðgerðir við stjórnarráðið á miðvikudag

savingicelan.jpgSaving Iceland er með nýjar aðgerðir í undirbúningi til að mótmæla stóriðju á Íslandi. Á miðvikudaginn standa samtökin fyrir mótmælastöðu við stjórnarráðið á Lækjartorgi kl. 12 og sama dag verða samtökin með aðgerðir við Þjórsá og ætla að efna til göngu að Urriðafossi kl. 15.

Í tilkynningu frá Saving Iceland segir að miðvikudaginn 12. september verði haldin mótmæli af ýmsum toga gegn útbreiðslu stóriðju víða um heim. Saving Iceland sé hluti af alþjóðlegri hreyfingu og hafi myndað tengsl við sams konar baráttuhópa víða um heim.

Kjörorð mótmælanna á miðvikudaginn eru: „Verjum Þjórsá fyrir Græðgi Landsvirkjunar.“ „Það er ljóst að landsmenn hafa ekki á nokkurn hátt þörf fyrir hvorki virkjanir né álver, allra síst þegar atvinnuleysi á landinu mælist innan við eitt prósent,,“ segir í tilkynningu frá Saving Iceland. „Hin eyðileggjandi sókn Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur inn á náttúrusvæði byggir ekki á nokkrum rökum, stjórnarmenn þar á bæ hampa einungis „réttinum til að stækka,“ er haft eftir Sigurði Harðarsyni, Sigga pönk í tilkynningunni.

Auk Saving Iceland verður efnt til aðgerða gegn stóriðju í Trinidad, S-Afríku, Indlandi, Brasilíu og Ástralíu, segir í tilkynningu Saving Iceland.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is