Frönsk rannsókn: D-vítamín dregur úr dánartíðni af völdum allra sjúkdóma
Ný, frönsk rannsókn bendir til að D-vítamín dragi ekki aðeins úr hættu á krabbameini, hjartasjúkdómum og sykursýki, heldur dragi það úr dánarlíkum allra sjúklinga. D-vítamín er meðal annars í lýsi.
Dr. Philippe Autier hjá Alþýðakrabbameinsrannsóknastofnuninni í Lyon í Frakklandi, og Sara Gandini, Evrpópsku krabbameinslækningastofnuninni í Mílanó á Ítalíu hafa farið yfir 18 rannsóknir á samtals rúmlega 57.000 sjúklingum og komist að því að dánarlíkur fólks sem bætiefni sem innihéldu D-vítamín voru 7% lægri en hinna sem tóku ekki D-vítamín.
Í niðurstöðum þeirra sem birtar eru bandaríska læknatímaritinu Archives of Internal Medicine segir að ekki sé ljóst með hvaða hætti inntaka á D-vítamíni dragi úr dánartíðni en: „Inntaka venjulegra skammta af D-vítamíni virðist tengjast lækkandi dánartíðni í heild.“
—-
Sjá hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is