Kópavogur: Fjallaði vanhæfur skólanefndarmaður um ráðningu frænda síns?
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma á fundi í kvöld tillögu Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra, um að óska eftir áliti bæjarlögmanns á því hvort fulltrúi Samfylkingarinnar í skólanefnd bæjarins hefði verið vanhæfur í skilningi stjórnsýslulaga þegar hann tók þátt í að fjalla um og greiða atkvæði með frænda sínum í stöðu aðstoðarskólastjóra við Smáraskóla fyrr í sumar.
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri, sagði í samtali við Eyjuna í kvöld að hann hefði haft fregnir af því að Þór Ásgeirsson, annar tveggja fulltrúa Samfylkingarinnar í skólanefnd bæjarins, og Sveinn Elínbergsson, sem sótti um og fékk aðstoðarskólastjórastarfið, væru skyldir og að hugsanlega hefði Þór verið vanhæfur þegar hann tók þátt í því í skólanefnd að fjalla um umsóknir og greiða atkvæði með Sveini í starfið. Þess vegna hefði hann lagt þessa tillögu fyrir bæjarstjórnina
„Ég vildi fá álit bæjarlögmanns á því hvort þarna væri um vanhæfi að ræða,“ sagði Gunnar í samtali við Eyjuna, „það hlýtur eitt yfir alla að ganga.“ Með því sagðist Gunnar vera að vísa til þess að bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hefðu meðal annars talið að Gunnar sjálfur og Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, væru vanhæfir til að taka afstöðu til skipulagsmála í hesthúsahverfi í bænum í fyrravetur vegna þess að kona Gunnars og faðir Ómars „áttu þar einhverja bása.“
Gunnar sagði að Sveinn Elínbergsson, sem áður var oddviti Samfylkingarinnar í Ólafsvík, væri hinn mætasti maður og hefði ekkert með málið að gera, málið snerist ekki um Svein heldur um stjórnsýsluna og hæfi skólanefndarmannsins frænda hans.
Bæjarstjórnin samþykkti svo tillögu bæjarstjórans einróma og fól bæjarlögmanni að kanna hvort skólanefndarmaðurinn hafi verið hæfur við ráðninguna eða hvort skyldleiki hans við umsækjandann væri svo mikill að Þór Ásgeirssyni hefði borið að víkja sæti í nefndinni meðan málið var þar til meðferðar.
Gunnar sagðist ekki vita hve skyldleikinn væri mikill, hann hefði heyrt að nefndarmaðurinn og umsækjandinn væru systkinasynir, en það væri meðal þess sem bæjarlögmaðurinn þyrfti að kanna. Hvert verður framhald málsins ef bæjarlögmaður kemst að þeirri niðurstöðu að hæfisreglur hafi verið brotnar af skólanefndinni? „Það er þá bæjarlögmanns að gera tillögur um hvernig taka þarf á því,“ sagði Gunnar I. Birgisson.
—-
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is