Biðst afsökunar á óheppilegum athugasemdum um 11. september
Jens Blauenfeldt, dagskrárgerðarmaður hjá danska ríkisútvarpinu, sér eftir að hafa viðurkennt í beinni útsendingu hver var fyrsta hugsun hans þegar árásirnar voru gerðar á tvíburaturnana 11. september. Þetta var það sem Blauenfeldt sagði: „Mér finnst eiginlega hálf asnalegt að viðurkenna það, en ég hugsaði, hey, þetta eru Bandaríkjamenn, nú fá þeir rassskell og hafa bara gott af því.“
Þessa setningu túlkar Søren Pind hjá flokknum Venstre í samtali við 180grader sem hatur á Bandaríkjamönnum. Því vísar Blauenfeldt á bug í fréttatilkynningu sem hann gaf frá sér:
„Ég er engan veginn anti-amerískur í eðli mínu og hef á engan hátt ætlað að láta það í ljósi. Núna, þegar ég sé mín eigin orð á prenti, sé ég vel hvernig hægt er að túlka þau pólitískt. Það var ekki meiningin og ég er leiður yfir þessu,“ segir í fréttatilkynningunni.
Lisbet Lambert deildarstjóri DR Programmer, sem Kvöldþátturinn er hluti af, segir að yfirlýsing Blauenfeldts um hryðjuverkaárásirnar gangi gegn reglum DR um hvað sé leyfilegt að segja.
„Ég er ánægð með að hann sér vandamálið og viðurkennir að hafa farið yfir strikið,“ segir hún.
DR ákvað í dag að fyrsti hluti Kvöldþáttarins, þar sem hin óheppilegu orð féllu, verði ekki endurfluttur í dag eins og til stóð. Hvort orð Blauenfeldt hafi frekari eftirmála er ekki vitað.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is