Miðvikudagur 12.09.2007 - 11:55 - Ummæli ()

Jarðskjálfti upp á 7,9 á Indónesíu: Óttast að tsunami fylgi í kjölfarið

Jarðskjálfti sem mældist 7,9 varð í morgun skammt undan suðurströnd Indónesíu. Yfirvöld hafa gefið út viðvörun um að tsunami-flóðbylgja kunni að skella á landinu í kjölfar skjálftans. Fréttir af mannfalli hafa ekki borist.

Áhrif skjálftans eru mest í Bengkulu héraði á Súmötru þar og í höfuðborginni, Jakarta, svignuðu háhýsi meðan skjálftinn gekk yfir.

Á annan dag jóla árið 2004 varð mikill jarðskjálfti undan Súmötru sem olli flóðbylgju sem varð meira en 230.000 manns að bana.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is