Föstudagur 14.09.2007 - 07:44 - Ummæli ()

Aukaeintök af Paris Hilton?

HiltonHótelerfinginn Paris Hilton hefur nýlega tilkynnt að hún sé tilbúin að stofna fjölskyldu.  Hilton segist ekki þurfa mann til að eignast börn, það sé nóg að börnum í heiminum sem vanti foreldra.  Hún vonast til þess að finna fjórar ljóshærðar stúlkur með falleg augu sem gætu tekið upp Hilton nafnið.

Paris vill leyfa börnunum að feta í fótspor sín og verða fræg, hún er sögð vilja ala stúlkurnar upp til að verða þekktustu konur í heiminum.  Hún vill gjarnan eiga nokkrar smáútgáfur af sjálfri sér og segist vonast til þess að dætur sínar verði fyrirsætur og í tengslum við það hefur hún hug á því að koma með eigin barnafatalínu.


Meira hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is